Hvaða, hvaða...

.....ég bara segi svona...

12.10.2009 12:37:37 / gullaerla

Facebook drap bloggið!!

Einhver sem mótmælir því??!!

Sit hérna og tel dagana þar til 30. október en þá fer ég og unnustinn til Orlando, bara við tvö í afslöppunar/verslunarferð. Ó mæ, hvað það verður gaman. Tengdó ætlar að passa börnin, og veit ég vel að væsir ekki um þau hjá þeim, en ég er samt með í maganum að skilja litluna eftir þar sem hún skilur ekki ennþá svona hluti. Sonurinn, hinsvegar, verður alsæll að láta ömmu dekra við sig og hlakkar bara til þess að fá pakka þegar við komum heim aftur.

Annars eru krílin óttalega mikil krútt og gaman að þeim. Þau eru svo góðir vinir og dunda mikið saman.

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2009 11:14:59 / gullaerla

Komin á gamlar slóðir aftur....

Ég var í þvílíku veseni og rugli við að færa ÖLL mín bankaviðskipti úr KB banka yfir í SPRON á síðasta ári..... Í síðustu viku kláraðist dæmið endanlega þegar lífeyrissparnaðurinn minn var færður frá KB banka yfir til SPRON... Ég segi bara ekki meir.. En auðvitað er það ekkert miðað við það sem aumingja fólkið sem stendur nú fram fyrir atvinnumissi er að upplifa.




» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2009 22:02:49 / gullaerla

2009 er komið

Það er ekki seinna vænna en að henda inn eins og einni færslu eða svo.... ef fólk kíkir ennþá... maður veit ekki.

Svosem mest lítið að frétta, 2009 runnið upp og alveg að koma mars. Ég strengdi sama áramótaheit og í fyrra og til að standa við það er ég byrjuð í Nautilus í sundlauginni. Finnst það æði. Ég er nokkuð dugleg að mæta, svona miðað við og er voða dugleg að hlaupa. Ég lyfti líka alltaf. Ég verð örugglega orðin ennþá flottari í sumar en eins og allir vita er ég nú þegar súparflott!!!!

Krílin mín dafna vel, stubbur er orðinn sama sem altalandi og skessan er ótrúlega mikið krútt. Sú hefur afskaplega heillandi persónuleika sem samanstendur af miklu jafnaðargeði og rólegheitum þar til henni mislíkar eitthvað... ómæ.... Það skemmtilegasta sem hún veit er stóri bróðir og hann er ósköp góður við hana.

Ég er heima ennþá og verð þar til í byrjun ágúst. Ég er farin að hlakka til að vinna aftur en ég er líka voða feigin að hafa þennan tíma með litli kellunni.

Ég er með hausinn fullan af sumri en ég verð alltaf óþreyjufull þegar mars nálgast og fer að sjá fyrir mér stuttermaboli og kvartbuxur, tjaldferðir og göngutúra. Það var yndislegt veður í dag þegar ég spókaði mig í Húsdýragarðinum með börnunum mínum. Skessan fékk að prófa að renna sér í rennibraut og kippti sér ekkert upp við þá ferð, hún horfði bara sposk á mömmu sína. Guttinn rauk í sjóræningjaskipið og fór um það allt eins og ekkert væri. Jiminn, hann er ótrúlegur klifurköttur. Það verður gaman að að fara í sumar þegar það er ekki klaki yfir öllu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 13:42:51 / gullaerla

Sex and the city

Ég loksins sá Sex and the city myndina í gær. Loksins!!! Þeir sem eru ekki búnir að sjá hana og vilja ekki vita meir ættu að hætta að lesa núna!! Allavegana, ég var nokkuð ánægð. Ég var ánægðust með að Carrie og Big skyldu enda saman, ég trúði því bara ekki að sambandið væri endanlega búið þegar brúðkaupið var blásið af. Ég hélt í vonina alla myndina að þau myndu finna hvort annað aftur og var ótrúlega ánægð með það. Big er bara maðurinn hennar Carrie, hvernig sem á það erlitið. Örlög vinkvennanna voru líka mér að skapi. Atriðið þegar Steve og Miranda fundu hvort annað aftur var alveg yndislegt. Myndin var samt doldið skrýtin, það var eins og það vantaði endi. Ég hefði líka viljað sjá Carrie ganga inn gólfið í brúðarkjólnum og horfa framan í Big, þá hefði ég örugglega skælt.

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 13:10:36 / gullaerla

Krepputal

Það er skrýtið ástand þessa dagana. Eftir því sem dagarnir og vikurnar líða þá sér maður betur og betur hver áhrif kreppunar eru og verða.

Maður fer í búðina og fær alltaf minna og minna fyrir aurinn.

Þeim fjölgar sem maður heyrir af að séu búnir að missa vinnuna eða eru í hættu á að missa vinnuna.

Fólk er meira heima hjá sér, en áður, vil ég meina, kannski af því að ég er voða mikið heima, finnst mér að allir hljóti að vera það líka.

Ég held að margir séu farnir að snúa sér að hverslags dundi, en ég er einmitt farin að hekla, sem ég hef ekki gert mikið af, og stefni að því að endurnýja kynnin við prjónaskapinn fljótlega.

Fólk er farið að tala um að gefa hógværar gjafir í ár.... og meinar það, sem mér finnst frábært. Ég ætla að endurskoða jólagjafalistann minn í ár en reyna að leggja alúð í þær gjafir sem ég gef.

Ég finn að ég hugsa mikið um þetta og tek þetta nærri mér. Ég reyni að vera jákvæð. Ég reyni að skreppa út reglulega, því það er víst ekki hollt að vera heima hjá sér alla daga. Ég er þakklát fyrir að hafa vinnuna mína og unnustinn líka en svo fer maður að hugsa um alla þá sem eiga, og koma til með að hafa hafa það erfitt.

Ég skil bara ekki afhverju maður þarf alltaf að vera jákvæður? Er maður þá ekki að loka augunum fyrir því sem er og koma skal.  Auðvitað batnar ástandið ekkert þó manni líði illa yfir því en stundum er allt í lagi að hugsa aðeins málin. 

Ég vona innilega að fólk komi til með að gera hugsað um sig og sína á komandi mánuðum.

Hvernig upplifið þið þetta allt saman?

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 23:30:37 / gullaerla

Lottó

Mig langar ótrúlega að vinna í lottói. Ég ákvað þess vegna að kaupa mér miða í lottói síðustu helgi og til að vera viss um að ég myndi vinna keypti ég miða fyrir hundruðu þúsunda. Ég hafði reyndar ekki alveg efni á því þannig að þeir sem eru með lóttóið létu mig hafa pening svo ég gæti keypt miða. Ég hlyti bara að vinna þannig að ég gæti borgað þeim til baka strax á mánudaginn. Ég var svo glöð að fá peningana að ég keypti reyndar ekki lottómiða fyrir allan peninginn heldur splæsti ég í smá fyrir sjálfa mig.

En allavega, þá komu tölurnar mínar ekki upp. Alveg ótrúlegt... ég sem keypti svo marga miða. Ég var alveg miður mín þegar ég hringdi í lottóið því ég náttúrulega skuldaði þeim fullt af peningum En hey, þeir sögðu að ég mætti bara eiga peningana, af því að ég væri svo góður spilari. Ég má meira að segja vinna hjá þeim ef ég vil. En ég á þó allvega fínu fötin sem ég keypti fyrir peninginn sem ég tímdi ekki í lottómiðana og vísa vinnu hjá lottóinu. YESS!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 11:42:19 / gullaerla

Öll í ruglinu

Ég er öll í ruglinu þessa dagana, held að ég hugsi allt of mikið. Langar ykkur að kíkja aðeins í klikkhausinn? :lol:

Ég á tvö snuddubörn, mismikil samt. En af öllum þessum snuddum datt ég inn í mjög svo súrrelískan heim.

Það nota allir snuddur, jafn sjálfsagt og tannbursti bara. Ekki allan daginn samt, heldur bara í bílnum og þegar maður er að fara að sofa. Stundum stelst maður kannski í snudduna yfir sjónvarpinu á kvöldin. Maður fer í rúmið á kvöldin, kyssir kallinn góða nótt og stingur upp í sig snuddunni, hún er eldrauð, rosa flott með hjarta á. Kallinn er sjálfur með svarta snuddu. Svo þarf maður að hafa snuddu í bílnum, það er skylda, ef maður er að keyra sko. Þannig halda ökumenn ró sinni, bara passa sig að sofna ekki undir stýri. Finndist ykkur þetta ekki fyndinn heimur?

Mæli með grein í fréttablaðinu í dag um hamingjuna.

Kv. Rugludallur

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 20:43:07 / gullaerla

Bankarnir

Alveg er það merkilegt að þrátt fyrir að allt sé að fara fj.... til þá vakna ég á morgnanna og sofna á kvöldin. Börnin mín eru líka alveg jafn glöð og ánægð og þau voru áður en vitleysan byrjaði. Þau virðast ekkert spá í svona rugli :d Ég verð þó að viðurkenna að mér er ekki rótt, þrátt fyrir að sjá fram á litlar breytingar á mínum högum....tja, skv. Geir allavega, en hvað veit hann????!!!

Í alvöru, er ekki lagi með þetta fólk? Sök sé þó ég hafi ekki séð þetta fyrir. Common, ég fór í hjúkrun þar sem ég hef engan áhuga á svona talnadóti en hver er þeirra afsökun? Gat enginn sagt sér að bankarnir væru kannski örlítið of stórir fyrir svona lítið land..... ? Og getur enginn verið hreinskilinn eða einlægur þegar hann talar? Er það bara ég eða finnst fleirum eins og það sé endalaust verið að fylla mann af bulli. Ég horfi á viðtal eftir viðtal og mér finnst enginn tala eins og hann á samvisku til. Það er alltaf eitthvað sem fylgir eins og "ekki fyrirséð", ólgusjór fjáramálaheimsins", "það er allt í lagi hjá okkur".

Ég vona að ég fái einhverja vini frá útlöndum í heimsókn fljótlega, kannski vill einhver koma og gera jólagjafainnkaup.... Hey, maður verður að líta á björtu hliðarnar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 22:52:54 / gullaerla

Mamma allan sólarhringinn

Það eru ljúf augnablikin sem ég á með dóttur minni á nóttunni. Hún er óttaleg brjóstakelling og biður um næringu 1-3x á nóttu. Venjulega tekur fyrsta gjöfin stutta stund, enda er hún þá hálfsofandi og steinsofnar við gjöfina. Þá legg ég hana aftur í vögguna og fer að sofa sjálf. Seinni gjöfin er oft meira mál. Þá tekur hún sér meiri tíma, þarf stundum nýja bleiu og smá mömmuknús. Sjaldnast tími ég að leggja hana í vögguna eftir þá gjöf heldur fær hún að kúra upp í hjá okkur. Hún sofnar ekki alltaf við gjöfina heldur liggur dálitla stund eftir sopann og horfir á mig, augum sem virðast svört í rökkrinu. Svo smá saman síga augnlokin niður og hún sofnar sætum svefni.

Augnablikin sem ég á með syni mínum eru annars eðlis, enda er hann orðin stór strákur. Fyrir honum er að opnast heill heimur bókmennta og á kvöldin sitjum við og lesum fyrir nóttina. Það er dottið út að benda á myndir, nú er hægt að lesa bækur með söguþráð. Lúlli og Einar Áskell eru í uppáhaldi þessa dagana, en sérstaklega hefur hann gaman af sögum þar sem koma fyrir tígrisdýr, ljón, skógarbirnir eða krókódílar. Hann hefur líka gaman af því þegar Lúlli lætur kjánalega. Stafirnir eru heillandi og er hann farinn að þekkja þá nokkra. Svo endum við stundina á að syngja og svo fer hann að sofa, örþreyttur leikskólastrákurinn.

Ég þarf stundum að minna sjálfa mig á að gleyma ekki sjálfri mér. Verð að muna áramótheitið, að hugsa vel um mig. Ég er alltaf  mjög ánægð ef ég er með eitthvað annað planað á kvöldin en að fara í sturtu, horfa á sjónvarpið eða fara í tölvuna....en ég er bara svo oft þreytt að ég hef ekki orku í að gera nokkuð annað, þegar börnin eru sofnuð og húsverkin búin.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 22:53:29 / gullaerla

Matur

Oh, ég vildi óska þess að ég væri einhver kokkur í mér. Ég hef ágætlega gaman af því að elda mat, en vil hafa hlutina einfalda og nenni sjaldan að gera einhverja stórkostlega rétti. Ég fórna höndum þegar ég sé uppskriftir með fullt af hlutum sem ég á ekki og nenni sjaldnast að gera þannig. Svo öðru hvoru dett ég niður á uppskriftir sem mér finnst alveg ótrúlega góðar og ru ekkert svo rosalega flóknar og þá er það eldað, bara alltaf þegar tilefni er til. Þegar við bjóðum svo fólki í mat er voða auðvelt að elda eitthvað af þessum 3-4 uppskriftum sem mér finnst svona vel heppnaðar, þarf ekkert að liggja yfir uppskriftabókum heldur vippa bara fram Jamie Oliver kjúlla eða túnfiskpasta og læt eins og ég hafi aldrei gert neitt annað..... Það er samt næstum því máli, ég hef eiginlega ekki gert neitt annað.... :d

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 13:57:27 / gullaerla

Ég styð ljósmæður...og fleira smálegt

Ég styð kjarabaráttu ljósmæðra! Það er löngu tímabært að þær fái laun í samræmi við menntun og eðli starfs síns.

Ég var hinsvegar búin að steingleyma því að það er ljósmóðir sem átti að hitta mig og dóttur mína í 3 mánaða skoðun í morgun. Var ótrúlega spennt að mæta með dömuna og skella henni á vigt, því hún blæs út og er oftar en ekki kölluð litla bollan. Það var hins vegar læknir sem tók á móti mér og framkvæmdi læknisskoðun, sem er hluti af 3 mánaða skoðuninni en sleppti öllu sem ljósmóðirin hefði átt að gera, s.s. að bólusetja, vigta og mæla. Einnig var ég ekkert að spurja hann mikið, því ég ætla að bíða með allt slíkt þegar ég mæti aftur í næstu viku, en við fengum nýjan tíma hjá ljósmóðurinni. Hún verður vonandi komin með betri kjör þá þegar.

Annars er það að frétta af guttanum að hann er leikskólastrákur sem hefur verið í aðlögun þessa vikuna. Það gengur glimrandi vel, og dró ég hann grátandi út af leikskólalóðinni í dag því hann vildi vera lengur. Á morgun verður hann fullan dag, frá 7:45-14:15 og fær þá að sofa í leikskólanum. Honum hefur fundist leiðinlegt að meiga ekki leggjast með hinum krökkunum þegar þau fara að sofa, heldur þurfa að fara heim með mömmu og litlu systur sem eru greinilega mest óspennandi þessa dagana.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 11:37:20 / gullaerla

Allt að komast í gírinn

Nú eru 2 annasamir mánuðir liðnir og það sem hefur helst verið að gera þessa mánuði er:

- Lítil daman er búin að tryggja sér sess í fjölskyldunni okkar. Hún er bæði falleg og yndisleg og ótrúlegt kraftaverk.
- Brjóstagjafir nætur og daga.
- Unnustinn var í fæðingarorlofi í júní og júlí en fyrstu sex vikunum eyddi hann í að koma stofunum í stand, sem hafðist og nú eigum við 2 fínar stofur.
- Í allri vinnunni þurfti hann reglulega að bregðast við hjálparköllum úr öðrum hlutum íbúðarinnar þegar tveggja barna móðirin réð ekki við bæði börnin í einu.
- Litla daman var skírð og var veislan haldin heima (m.a. í umræddum stofum).
- Guttinn varð 2 ára og var haldið upp á afmælið hans....í skírnarveislunni.
- Óteljandi rólóferðir á Stelluróló.
- Góð sumarbústaðarferð á Apavatn þar sem aflöppun var efst á báti, enda ekki nógu gott veður.
- Skátamót á Akureyri sem var bæði hin mesta skemmtun og gott veður. Guttinn dansaði, skoppaði og skemmti sér eins og best var á kosið.
- Ferð í Nauthólsvík á heitasta degi sögunnar, þar sem ég fékk bæði að upplifa það að vera föst á umferðareyju með bæði börnin í steikjandi hita eftir að ekið var aftan á okkur OG vera svo eins og síld í síldartunnu þegar loksins á ströndina var komið.
- og margt, margt fleira...

En nú er unnustinn farinn að vinna aftur og ég sit uppi með bæði börnin og hjálparóp gagnast lítt. En þetta hefst allt því ég get verið ofurskipulögð þegar ég vill hafa það svo. Reyndar hefur komið á daginn að stúlkan er hið mesta ljós og lítið fyrir henni haft og drengurinn virðist skilja það að hann þarf að vera góði strákurinn þegar pabbi er að vinna. Orkan brýst svo út þegar faðirinn gengur inn um dyrnar, barnið verður hálfsturlað og skilur faðirinn ekkert í því að konan hans geti ráðið við bæði börnin. Hún brosir þá undurblítt og segist hafa leynda hæfileika en upplýsir lítið um hegðun drengsins yfir daginn, svo hann fái það nú ekki á tilfinninguna að það sé létt verk að hugsa um tvö smábörn.

Annars hef ég nýtt mér róló sem er í grenndinni og svo hef ég góða von um að drengurinn hefji aðlögun á leikskóla í byrjun september. Það stóð til að hann myndi byrja í ágúst en það er mannekla sem hefur verið að setja strik í reikninginn.

Þessa dagana og vikurnar snúast semsagt að mestu um börnin mín. Ég hef þó von um að finna sjálfa mig smá saman þegar líða tekur á haustið. Hlakka til að hitta góðar vinkonur og stefni á að komast í bíó með unnustanum þegar meiri regla er komin á dömuna. Heimsóknir alltaf vel þegnar, enda kemst ég lítið frá sjálf, eins og er.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 22:01:45 / gullaerla

Tveggja barna móðir

Fyrir viku síðan lá ég upp í sófa heima hjá mér með óreglulega verki og hugsaði með mér að nú færi þetta væntanlega að styttast. Ó, já, daginn eftir kom lítil sæt dama í heiminn, 14 merkur og 52,5 cm. Smækkuð mynd stóra bróðurs. Fæðingin gekk mjög vel og tók stutta stund.

Það gengur voða vel með litluna og er hún draumabarn. Hún sefur, drekkur og horfir út í loftið. Stóri bróðir er allur að koma til, en það er ekki laust við að hann sé afbrýðissamur. Sérstaklega á hann erfitt þegar hann er þreyttur en hann er samt voða góður við systur sína.

Nætursvefn er hins vegar liðin tíð, sef 4-5 tíma á nóttu en reyni að bæta mér það upp á daginn. Litlan vakti til 1:00 síðustu nótt og svo vaknaði guttinn rúmlega 5:00. Þetta hlýtur allt að jafnast út með tímanum þegar við erum öll farin að aðlagast stækkandi fjölskyldu.

Sjálf er ég öll að hressast eftir fæðinguna, farin að hlaupa 10 km á dag og gott ef sixpackið er ekki að koma í ljós aftur......  he, he 8)....ég er allavega búin að pakka snúningslakinu og þykir mér það ágæt byrjun.

Sé fram á að hafa tíma fyrir sjónvarpsgláp á næstunni, þar sem ég eyði töluverðum tíma upp í sófa að gefa brjóst. Er dottin inn í Cold feet seríurnar, sem er hin mesta snilld og mér skilst að sé skylda hverrar mjólkandi móður að horfa á.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 21:14:46 / gullaerla

Klakasjúk konan

Þá er settur dagur að detta á og það er helst í fréttum að ég hef komið mér upp nýju áhugamáli. Það felst í því að ávallt skal vera til nægur klaki í frystinum. Ég bryð þennan klaka, mér til ánægju, 1-2 klakabox á sólarhring...nætur ekki undanskyldar. Best er að setja heilt box út í stórt vatnsglas, þannig að þeir mýkist aðeins og háma þá svo í sig á ca. hálftíma. Nammi, namm. Unnustinn horfir stóreygður á aðfarirnar en er jafnframt feigin að ég sniffa ekki bensín eða ét eldspýtur eins og sumar ófrískar konur ku gera. Ég hef heyrt að þetta geti verið vegna járnskorts en það var mælt hjá mér járnið í gær og er það bara í fínu lagi. Vona að ég missi áhugann á klakaáti eftir fæðingu því þetta er víst ekki gott fyrir tennurnar. Þetta er hinsvegar ekkert einsdæmi og hér er hægt að kynnast fólki sem á sama áhugamál og ég :d

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 21:33:42 / gullaerla

Það er kominn maí.....

Það er kominn maí og ekkert litla barn mætt. Það er svo sem ekki kominn settur dagur, sem er 24. maí þannig að ég er ekki farin að örvænta ennþá. Ég átti samt hálfpartinn von á barninu í dag þar sem mig dreymdi að það myndi fæðast 18. maí, en sú von er öll að renna í sandinn. Plan B er að eiga barnið 25. maí, sem mér finnst flottur afmælisdagur og plan C er að eiga 31. maí en ef langamma mín hefði lifað hefði hún orðið 100 ára þann daginn. Það kemur hinsvegar ekki til greina að eiga barnið í júní.

Ég held að unnustinn voni að ég gangi með barnið í 42 vikur. Hann hefur nefnilega ekki tíma til að sökkva sér í barnauppeldi og heimilisstörf akkúrat núna þar sem hann er á fullu að gera stofurnar okkar fínar. Það er helst í fréttum þaðan að innri stofan var máluð fyrstu umferðina í dag og í vikunni fer fram mikil rafmagnsvinna. Svei mér þá ef ég er ekki bara farin að sjá fyrir endann á ósköpunum. Erum orðin voða spennt að kaupa borðstofuhúsgögn og fara að bjóða fólki í heimsóknir.

Litli guttinn er lasinn eins og er.... Hér fengu allir á heimilinu slæma pest fyrir tveimur vikum og voru allir orðnir nokkuð hressir aftur, nema litli stubbur var alltaf með hósta. Svo í kvöld fékk hann hita og slappleika. Aumingja skinnið, vona að hann hressist áður en systkinið mætir á svæðið.

Svo er ég hætt að vinna, hef ekkert unnið síðan ég fékk pestina, enda orðin ansi þung á mér. Ég má varla sjá koll, stól eða bara eitthvað sem ég get sest niður á, þá er ég búin að hlamma mér á rassinn. Ég er samt mun nettari núna heldur en þegar ég gekk með frumburðinn.

Jæja, ætla að fara undibúa komu litla barnsins, hef ekki verið nógu dugleg að gera allt tilbúið og mætti eiginlega segja að ef ég færi af stað í nótt yrði nett panikk.... Þegar ég var komin svona langt með soninn þá stóð vaggan tilbúin á stofugólfinu með öllu hreinu í, sjúkrahústaskan var alveg tilbúin og allt þvegið og straujað í skúffunum....Þetta er ekki svona núna....

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan